Spánn here I come!!

Klukkan er 5:16 og núna eru um það bil 20 mín þar til ég legg af stað upp á flugvöll með fjölskyldunni! Við erum að fara til Spánar í tvær vikur :-) Þvílíkt fjör. Ég er að fara til Spánar í fyrsta sinn og hlakka ekkert sma til að sjá allt! 
Ég fékk aldeilis skemmtilegt sms í morgun um að eitt af bikiníunum mínum væri komið! Ég sem var ekki að búast við því fyrr en eftir allavega viku í viðbót, en já mjög skemmtilegt að það skildi koma svona á sama degi og ég er að fara! Þannig ég fæ að vera í nýja bikiníinu mínu úti! Jeijj! Svo verða undirfötin mín og hitt bikiníið örugglega komið þegar ég kem til baka :-D En lengra verður þetta ekki í bili, ég mun reyna að blogga eitthvað úti :-D Þar til næst... Blessó!



Hér sést sæta sundlaugin fyrir framan húsið :-) Svo er ströndin 5 min frá 


Nýr spons og mikil gleði!

Mig langaði til þess að sýna ykkur skó sem ég er ný orðin ástfangin af! Þeir eru frá Chanel og eru að slá í gegn úti, enda ótrúlega töff. Þeir líta út fyrir að vera mjög þægilegir og maður er örugglega fljótur að hoppa í þá! Þeir koma í : Hvítu, brúnu, bláu og síðast en ekki síst svörtum!


                
      



Einnig gaman að segja frá því að ég fékk nýjan sponsor í fyrradag. Þetta er glæný hönnun á bikiníum og munu þau líklegast koma með keppnis-bikini seinna, að ég held.
Merkið heitir Véve og er strax búið að vekja mikla athygli úti og fær frábærar viðtökur. Ég hélt ég ætlaði aldrei að ná að velja mér bara eitt því þau voru svo mörg alveg fáranlega flott! En á endanum tókst það og núna bíð ég bara spennt eftir að fá það sent heim og skella mér í töku. Ég ætla ekki að spoil'a fyrir ykkur hvernig bikiníið er sem ég valdi mér, það verður bara að koma í ljós seinna... :-)! En ég vil þakka Véve kærlega fyrir að sponsa mig, bikiníin þeirra eru gullfalleg!


 TRIANGL voru líka svo æðisleg að gefa mér annað bikiní og núna undirföt líka! :-) Ég er búin að vera alveg í skýjunum! En ég ætla heldur ekki að spoil'a þeim fyrir ykkur heldur mun ég sýna ykkur myndir þegar þau koma!
http://www.triangl.com/

Smá árangur :-)

Hæææj! 
Ég er búin að vera stússast mikið síðustu daga, loksins... Loksins! Byrjuð í ökunámi og gengur jú bara frekar vel :) Í dag eru bara 10 dagar þangað til ég fer til Spánar með familí og ég get ekki beðið! Lyggja bara á ströndinni með bók í hendi og slaka á... aaah sannkölluð paradís. 

Ég er búin að vera dugleg að mæta í ræktina og gera auka cardio! Þessi blessaða stigavél... Svona love/hate relationship... Ekki satt? 
Ég fór í fitumælingu í fyrradag og er ég komin úr 20,5% fitu niður í 17,9% á tveimur vikum :-D Þvílík gleði! Og núna er það bara gefa allt í botn! Mætti einmitt eldhress í morgun og tók brennsluæfingu, manni líður alltaf svo vel eftir á, bætir daginn þvílíkt :-) Svo tók vinnan við, ökuskóli 1 og svo bíó með Ólöfu minni á Noah, þrusuflott mynd! Mæli með henni.

Í síðustu viku var ég svo módel hjá Önnu sætu sem er núna útskrifuð sem förðunarfræðingur frá nýja geðsjúklega flotta Reykjavík Make up School hjá Söru og Sillu snillingum. Þetta var mjög skemmtilegt og var ég ÖLL útí glimmeri eftir þetta vegna þess að ég átti að blása hrúgu af glimmeri úr lófunum á mér :-D En nóg í bili! Blessó

Hér er ein vikugömul, smá árangurs :)

Þessi er eftir Arnold og er úr lokaverkefninu hennar Önnu :) Nóg af glimmeri eins og þið sjáið!

Alveg glimmrandi-hress að vanda! Haha

 Og svo í endan er ein sæt af mér og Kamillu á leiðinni á æfingu :)



I want!!

Góðann daginn!
 Í morgun vaknaði ég 05:30 og labbaði á morgun æfingu í world class, fitness form hjá Katríni Ösp snillingi. Það var vel tekið á því enda þema tímans ''Víkingaþrek'' úff. Eftir tímann fór ég heim og vakti bæði kærastann minn og pabba minn með hafragraut sem innihélt rúsinur og mikið af súkkulaði prótini. Pabbi fór síðan í vinnuna og kærastinn minn Jói í skólann, þar sem hann er í Verzló er ekkert verkfall hjá honum! Heppinn hann. Þannig ég sit bara hérna ein eftir heima... Skrýtið að það sé verkfall núna og maður veit ekkert hve lengi það verður eða stutt! Mjög óþægilegt. Ég er búin að vera að hanga smá í tölvunni síðustu daga og hef rekist á nokkrar flottar flíkur sem ég er að deyja yfir hvað mig langar í þær! Ohh... En hér koma nokkrar myndir :)!  


Þessar suttbuxur eru að drepa mig! Finnst þær klikkað flottar, langar svo í þær til að taka með til Spánar á ströndina

Geggjaður kjóll!


Þessi Kimono færi ég ekki svo spart með ef ég myndi eignast hann !


Hvítur síður bolur... MUST!


Finnst þessi líka lúmskt flottur þótt ég myndi ekkert vita í hvað ég ætti að nota hann! En það myndi reddast :)


Ég bara læt mig dreyma... Er nú að fara út eftir 26 daga ! Hlakkar svo til :)!!

Ný færsla ;*

Hæhæ! 
Ég var bara að vakna og fá mér morgunmat en ég fékk mér abmjólk með hveitiklími og stevíu, mmm svo gott! Mamma var voða sniðug og sýndi mér þetta, bæði mjög fljótlegt og gott! Núna er ég bara aðeins að renna yfir glósur fyrir próf, en ég byrja ekki í skólanum fyrr en 12:30 á fimmtudögum :) 

Þegar ég kíkti inná bloggið sá ég að það voru næstum 1400 síðuflettingar síðan í gær! og vá, kom mér ekkert smá mikið á óvart! Ekkert smá gaman að sjá svona :) 

En gaman að segja frá því að ég er nýbyrjuð að safna saman sponsum, sem eru mjög mikilvægir og geta hjálpað mikið, þar sem að öll fæðubótarefni og alllt sem tengist líkamsrækt getur orðið mjög dýrt léttilega! Fitness sport strákarnir eru svo æðislegir að þeir eru byrjaðir að sponsora mig og fæ ég þá öll mín fæðubótarefni,vítamín og fleira frá þeim! Ég mæli eindregið með þeim því það er alltaf frábær þjónusta, gott verð og gott andrúmsloft! :) Einnig er World Class að sponsora mig, en ég æfi hjá þeim og að mínu mati þá er þetta besta líkamsræktarstöðin. Ég æfi lang oftast í Laugum vegna þess að ég bý rétt hjá og er bara 3mín að labba, og þarna er alltaf fullt af fólki að æfa á öllm tíma dags sem mér finnst mjög hvetjandi! Triangl sponsoruðu mig líka smá um daginn en þá sendu þeir til mín æðislega fallegt bikiní sem ég mun vera í eftir 30 daga þegar ég fer á ströndina á Spáni! :) Áður en Triangl sponsuðu mig keypti ég samt hjá þeim bikiní sem ég er rosalega ánægð með! Það verður sko gaman að fara í fallegu nýju bikiníin mín úti! Er að kafna úr spenningi svo stutt í þetta :)

En eftir skóla tekur svo við miðvikudags brennsla og heitapottur í Laugum og í kvöld er ég svo að fara út að borða og í leikhús með kærasta mínum og tengdarforeldrum :)!

Blesssóó!

Hér er bikiníið sem þeir gáfu mér :)



      Og hér er bikiníið sem ég keypti mér áður :)

Fyrsta færslann jeijj :D

Hæhæ!
 Ég er búin að vera að hugsa um að búa til blogg í smá tíma og er loks að láta verða af því, ég veit ekki hvað það er sem heillar mig svona við blogg en mér finnst þau svo skemmtileg :) Svo þið vitið nú eitthvað um mig þá ætla ég að byrja á að segja aðeins frá sjálfri mér.Ég heiti Móeiður og er frá Íslandi og bý í Reykjavíkinni, fædd 4.júlí 1997 og er krabbi í stjörnumerki, ég hef mikinn áhuga á líkamsrækt og heilsusamlegum lífstíl! Svo finnst mér hestar líka æðislegir og á einn svoleiðis vin sem heitir Hnútur :) Og svo er ég í Menntaskólanum við Sund. Á þessu bloggi langar mig aðallega að fjalla um daglegt líf og áhugamál. 

Dagurinn í dag! 12.mars 2014
Byrjaði með því að ég svaf yfir mig, einmitt eitt af því sem ég er mjög góð í...Ég átti nefnilega að mæta á morgun æfingu kl 06:00...En ég skellti í mig hafragraut með súkkulaðiprótini frá Fitness sport og smá rúsínum með og fór svo í skólann, á réttum tíma sem betur fer. Eftir skóla fór ég heim og mér tókst í alvörunni að sofna uppí rúmmi... Og ég rotaðist þar í 5 tíma! þegar ég vakna er kvöldmatur og svo fer ég á æfingu með stelpunum í World Class. Það var bak og bicep í dag og svo fórum við í heitapottinn eftir á, lúxus :) Mjög fínn dagur en þvílíkt klúður að sofa yfir mig í morgun og sofna eftir skóla! Reyni að passa að þetta gerist ekki aftur! :) 

Instagram: instagram.com/moeidursvala
Yevvo: moeidursvala
Facebook: facebook.com/moeidursvalaaa

Læt fylgja með tvær nýlegar myndir :)!